Leiðbeiningar: IdHair Black Magic permanent
IdHair Black Magic er permanentkerfi sem gefur fallega og endingargóða lokka og liði. Kerfið er milt fyrir hár og hársvörð og verkunartíminn er aðeins 10 mínútur. Kerfið samanstendur af permanentvökva (0, 1 eða 2), festi (Neutralizer) og Keratin lokameðferð.
1. Permanent – nr. 0, 1 og 2
Byrjið á að nota litlu túpurnar. Veljið permanentið sem hentar hárinu:
- 0/F: Venjulegt hár eða hár sem þolir sterkt permanent
- 1/N: Venjulegt eða litað hár
- 2/C: Viðkvæmt hár eða strípað hár
- Setjið plast og handklæði yfir hárið eftir að permanentið er borið í.
- Látið permanentið bíða í hárinu í mesta lagi 10 mínútur. Hárið má alls ekki þorna.
- Hreinsið hárið í 7–10 mínútur (sítt hár allt upp í 15 mínútur). Passið að allt efnið sé hreinsað úr til að koma í veg fyrir óæskilega lykt.
2. Festir (Neutralizer)
IdHair Black Magic Neutralizer hentar fyrir allar hárgerðir.
- Þurrkið hárið varlega með handklæði.
- Blandið vel saman 75 ml af Neutralizer og 75 ml af vatni. Setjið 2/3 af vökvanum í hárið og byrjið næst hálsinum.
- Látið bíða í 5–7 mínútur.
- Takið rúllurnar úr hárinu. Setjið restina af Neutralizer-blöndunni í hárið og endana.
- Látið bíða í 3–4 mínútur.
- Hreinsið hárið vel.
Þegar permanent er sett í sítt hár er mælt með því að hreinsa hárið áður en rúllurnar eru teknar úr.
3. Keratin
Eftir að Neutralizer hefur verið notaður er tilvalið að loka meðferðinni með IdHair Black Magic Keratin. Það kemur í veg fyrir að skaðleg efni sitji eftir í hárinu. Hentar fyrir allar hárgerðir.
- Þurrkið hárið með hreinu handklæði.
- Setjið 30 ml af Keratini jafnt í allt hárið. Látið bíða í hárinu í mesta lagi 3 mínútur.
Keratin er einnig hentugt að nota eftir litameðferðir.