Skilmálar

Skilmálar

Skilmálar þessir gilda um viðskipti við Þórborg ehf., kt. 610504-2130, VSK-nr. 83721, Nýbýlavegi 28, 200 Kópavogi (hér eftir „Þórborg“) í gegnum vefverslunina thorborg.is.

Viðskiptavinir

Vefverslunin er eingöngu ætluð fagaðilum og fyrirtækjum, svo sem hársnyrtistofum, snyrtistofum og verslunum. Sækja þarf um aðgang og Þórborg ákveður hvort og að hvaða vörumerkjum aðgangur er veittur. Þórborg getur hafnað umsókn eða lokað aðgangi án skýringa.

Verð

Öll verð eru heildsöluverð í íslenskum krónum án virðisaukaskatts. 24% virðisaukaskattur bætist við í körfu. Þórborg áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara og leiðrétta augljósar villur í verðum.

Pantanir

Pöntun telst móttekin þegar staðfesting hefur verið send. Þórborg staðfestir pantanir og lætur vita ef vara er ekki til á lager.

Greiðsla

Ekkert er greitt í vefversluninni. Reikningur er gefinn út í samræmi við greiðsluskilmála viðskiptavinar, að jafnaði með gjalddaga 15 dögum eftir útgáfu, eða gegn staðgreiðslu. Sé reikningur ekki greiddur á gjalddaga reiknast dráttarvextir samkvæmt lögum. Vörur eru eign Þórborgar þar til þær hafa verið greiddar að fullu.

Afhending

Um afhendingu fer samkvæmt afhendingarskilmálum Þórborgar.

Skil og gallar

Um skil og galla fer samkvæmt skilareglum Þórborgar.

Ábyrgð

Vörurnar eru ætlaðar til faglegrar notkunar og skal nota þær í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda. Þórborg ber ekki ábyrgð á tjóni sem hlýst af rangri notkun.

Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki tekst að leysa skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.