Um okkur
Þórborg er fjölskyldurekin heildverslun sem leggur áherslu á vönduð vörumerki og persónulega þjónustu og bjóðum upp á vörur sem við höfum sjálf trú á.
Við erum stolt af því að bjóða upp á spennandi og vönduð vörumerki á íslenskum markaði, þar á meðal IdHair, RapidLash og Zarkoperfume.
Við þjónustum hárgreiðslustofur, snyrtistofur, apótek og verslanir um land allt og leggjum áherslu á að byggja upp langvarandi samstarf við viðskiptavini okkar.
Sem fjölskyldufyrirtæki vitum við hversu mikilvæg góð samskipti og traust eru í viðskiptum. Við viljum að viðskiptavinir okkar finni að á bak við Þórborg stendur fólk sem hefur raunverulegan áhuga á vörunum, samstarfinu og árangri þeirra.
Hjá Þórborg sameinum við fagmennsku, persónulega þjónustu og ástríðu fyrir vönduðum vörumerkjum.