Skilareglur
Skilareglur
Þórborg ehf. selur eingöngu til fagaðila og fyrirtækja. Skilareglur þessar gilda um öll viðskipti í vefverslun Þórborgar.
Ef eitthvað er að pöntuninni
Vinsamlegast yfirfarið sendinguna við móttöku. Ef vara er gölluð, skemmd í flutningi eða ekki í samræmi við pöntun skal tilkynna það á thorborg@thorborg.is eða í síma 511 1381 innan 5 virkra daga frá afhendingu. Við bætum úr því með nýrri vöru eða kreditreikningi, ykkur að kostnaðarlausu.
Skil á óopnuðum vörum
Óopnuðum og óskemmdum vörum í upprunalegum umbúðum má skila innan 14 daga frá afhendingu, að fengnu samþykki okkar. Hafið samband áður en vöru er skilað. Kaupandi greiðir kostnað við endursendingu og fær kreditreikning fyrir andvirði vörunnar.
Undantekningar
Af hreinlætis- og öryggisástæðum er ekki tekið við opnuðum eða notuðum vörum, þar á meðal hárlitum, efnavörum og ilmvötnum, nema um galla sé að ræða. Sérpantaðar vörur fást ekki endurgreiddar.